Dr. BÆK slær í gegn; sannur vinur hjólanna
Miðvikudagur, 10. mars 2010 01:25
Dr. Bæk tók formlega til starfa á þessu vori í Norðlingaskóla að morgni 20. apríl. Hann skoðaði og vottaði ástand um 40 hjóla kennara og nemenda. Allir fengu límmiða eftir skoðun og ástandsvottorð. Það var pumpað í dekkin og keðjan smurð; skoðaðir gírar og yfirfarnar bremsur. Auk þess var bent á það sem var í góðu lagi og annað sem betur má fara. Nemendur skólans studdu Dr. Bæk af miklum dugnaði og áhuga eins og sjá má af myndum á heimasíðu Norðlingaskóla. Á næstu vikum mun Dr. Bæk heimasækja fleiri skóla og fyrirtæki; t.d. Fossvogsskóla, Mannvit, VSÓ og VÍS.
Áhugasamir um liðveislu Dr. Bæk sendi línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringi í s. 864 2776 og bóki stað og stund.

200 búnir að bóka í Bláfjöll!
Og enn eru 600 sæti í boði. Ætlar þinn skóli að hjóla með í Bláfjöll í vor?
Það er frábært ævintýr og skemmtilegt að upplifa hvað borgin okkar býr yfir miklum leyndardómum; meira að segja óbyggðum og þangað hjólum við!! Það er bara gaman - og pínulítið erfitt - en við höfum góðan tíma og það má líka ganga stundum með hjólin sín. Sendu fyrirspurnir á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Hjólafærni á Íslandi
Velkomin/n á heimasíðu Hjólafærni á Íslandi - skammstafað HFÍ. Þessi síða er til kynningar á fræðasetrinu Hjólafærni á Íslandi, sem varð til upp úr heimsókn Bretans John Franklins til Íslands á Samgönguviku 2007. Hann er sérfræðingur Breta í Bikeability, sem við þýðum Hjólafærni. Hjólafærni miðar að því að hvetja almenning til þess að njóta reiðhjólsins sem samgöngutæki í þéttbýli í góðri samvinnu við flæði umferðarinnar.
Á Íslandi njótum við þess að mega vera gestir á gangstéttum ef við virðum rétt gangandi umferðar, sem á allan forgang á gangstéttinni. Gangstéttar og stígar geta oftast stytt ferðaleiðir hjólreiðamannsins verulega í góðu færi. En á veturna er gatan oft eini staðurinn sem hægt er að hjóla á. Þá er lykilatriði að vera vel sýnilegur og í góðri samvinnu við umferðina.
Eins er hindrunarlausast fyrir hjólreiðamanninn að vera á götunni. Þar er besta viðhaldið á umferðamannvirkjum og leiðin er greiðust. Hjólreiðamaðurinn heldur hraða sínum, unnið upp af eigin orku, og kemst greiðlega leiðar sinnar, laus við að stöðva eða hægja á sér við hliðargötur á leið sinni.
Þó að við sem hjólum, tileinkum okkur notkun á götum borgarinnar, þá er áfram helsta baráttumál hjólreiðamanna að fá góða hjólastíga meðfram öllum helstu stofnbrautum Höfuðborgarinnar og góðar tengingar á milli borgarhluta og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Ávinningur þess að fleiri hjóli í samfélaginu er fjölþættur og allra hagur.
Markmið fræðasetursins Hjólafærni á Íslandi er að efla dáð hjólreiðamenningar á Íslandi í hvívetna.
